
Á föstudaginn lauk vikulangri heimsókn TSA (Transportation Security Adiministration BNA) þar sem TSA skoðaði framkvæmd flugverndar á Keflavíkurflugvelli. Megin niðurstaða TSA var að mjög vel sé hugað að framkvæmd flugverndar hjá bæði Samgöngustofu, Isavia ohf., flugrekendum og flugafgreiðsluaðilum sem heimsóttir voru. Það var einnig niðurstaða úttektarinnar að verndarmenningin á flugvellinum sé sterk og til fyrirmyndar.
Við getum verið mjög ánægð með okkar fólk í verndinni, orð eins og „great results“ og „excellent results“, „practice exeeding the EU requirements“ voru notuð af TSA á lokafundinum. Auk þess vakti gott og náið samstarf milli Samgöngustofu og leyfishafa athygli samkvæmt TSA enda mikilvægt til að tryggja árangur í þessum viðamikla málaflokki.
Von er á lokaniðurstöðum innan tveggja mánaða.