
Ísland hækkar enn í alþjóðlegum samanburði þegar kemur að stafrænni opinberri þjónustu og innviðum. Í nýrri úttekt Sameinuðu þjóðanna sem gerð er annað hvert ár er Ísland nú í 5. sæti af 193 löndum, en var í 12. sæti árið 2020. Af þeim löndum sem eru í tíu efstu sætunum í úttektinni hækkar Ísland mest á milli kannanna.
Í úttekt SÞ er er skoðað hversu vel ríkin standa að stafrænni þjónustu (Online Service Index), hugviti (Human Capital Index) og tæknilegum innviðum (Telecommunication Infrastructure Index). Hugvit og tæknilegir innviðir eru þeir þættir sem skila Íslandi 5. sætinu. Ísland mælist einnig framarlega í stafrænni opinberri þjónustu og má búast við að sá flokkur hækki áfram. Mikil áhersla er á stafvæðingu þjónustunnar þessi misserin sem felur í sér að hún verði að fullu aðgengileg á netinu í formi umsókna, greiðslu og kvittunar fyrir þjónustu.
Í ágúst síðastliðnum var Ísland í 4.sæti meðal Evrópuþjóða í stafrænni þjónustu og hækkaði um þrjú sæti milli ára. Þar var á ferðinni árlegri könnun á vegum Evrópusambandsins (eGovernment Benchmark).
Ríkisstjórnin hefur sett sér það markmið að Ísland verði leiðandi í opinberri, stafrænni þjónustu og sýna kannanir að vinnunni miðar vel áfram. Stafræn þjónusta er þegar farin að einfalda líf fólks, spara tíma á sama tíma og þjónustan batnar.
Nánar á eGovernment Development Index
Frétt á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins