
Í frétt í Fréttablaðinu á miðvikudaginn kom fram að Microsoft hefur nú formlega lagt niður vafran Internet Explorer. Vefstjóri hefur orðið var við að sumir hér innanhúss eru ennþá að nota vafrann góða og fannst því tilvalið að setja hér inn þessa stuttu frétt til upplýsingar 🙂
Fréttin hljóðar svo:
Internet Explorer lagt niður eftir daginn í dag
Netvafri Microsoft verður lagður niður eftir daginn í dag, 27 árum eftir útgáfu vafrans. Microsoft tilkynnti í fyrra áform sín um að leggja vafrann niður. BBC greinir frá þessu.
Internet Explorer var fyrst gefið út árið 1995 og náði hámarki sínu árið 2004 þegar 95 prósent tölvunotenda notaði vafrann. Í dag eru það hins vegar Google Chrome, Safari frá Apple og Mozilla Firefox sem fara með stærstu hlutdeildina á tölvumarkaði í dag.
SJÁ EINNIG
Microsoft í sókn gegn sínum eigin netvafra
Notendur sem vilja halda áfram að nota vafra frá Microsoft er bent á að nota vafrann sem Microsoft gaf út árið 2015, en sá vafri heitir Microsoft Edge.
Í umfjöllun BBC um málið segja þau upprisu snjallsíma hafa verið endalok Internet Explorer, en allir símar frá Apple höfðu Safari vafrann uppsettann í símann við kaup og Google Chrome var svoleiðis í Android símum. Apple og Android símar höfðu of stóra hlutdeild á símamarkaði til þess að Microsoft gæti keppt við þá með Internet Explorer.
Árið 2020 notuðu 9,1 prósent tölunotenda Internet Explorer og Edge samtals, taka má því svoleiðis að Edge sé að drífa þessa tölu upp.