Hvað er planið í mars?

Nú er komin dagskrá fyrir mars hér á innri vefnum.

Við biðjum ykkur að senda okkur tölvupóst á samskipti@samgongustofa.is ef þið eruð með hugmyndir eða tillögur um atriði sem má bæta inn á planið.

Markmið
Markmiðið er að ná betur utan um skipulagða kynningu á verkefnum Samgöngustofu, innanhúss og utan.

Hvað er planið? er ekkert einkamál. Það varðar okkur öll, verkefni allra sviða og allra deilda. Til að það blómstri sem mest þarf samstarf við alla stofnunina. Gott væri ef starfsfólk gæti skoðað með opnum huga hvaða verkefni gætu mögulega átt erindi við aðra. Stundum bara okkur hin sem hér störfum, en stundum einnig við fólk utanhúss, hagaðila eða almenning. Við notum ýmis verkfæri og veljum þau eftir tilefnum. Til dæmis innri vef, ytri vef, Facebook, föstudagskaffi og fréttir til fjölmiðla – svo nokkuð sé nefnt.

Við biðjum ykkur um að senda okkur póst á samskipti@samgongustofa.is varðandi allar hugmyndir og tillögur sem deildin eða sviðið ykkar gæti haft um verkefni sem gætu passað á Planið. Þetta geta verið mál sem varða til dæmis nýjungar, breytingar, þjónustu, innra starf, árleg verkefni, úttektir, samfélagsmál, samvinnumál, mannauðsmál, fræðslumál, mannlega þáttinn og fleira.