Hertar samkomutakmanir – nýjar reglur

Hertar samkomutakmarkanir taka gildi frá miðnætti og fara fjöldatakmarkanir úr 20 í 10 til 2. febrúar nk. Við munum skipta húsinu okkar upp í eftirfarandi sóttvarnarhólf;

  • 1. hæð þjónustudeild – notar starfsmannainngang í portinu á bak við húsið.
  • 1. hæð skjaladeild- og kerfisrekstur – notar aðalinngang
  • 1. hæð mötuneyti – notar mötuneytisinngang
  • 2. hæð – notar starfsmannainngang Ármúlamegin
  • 3. hæð – notar starfsmannainngang Ármúlamegin

Því miður þá getum við ekki skipt upp 2. og 3. hæð frekar vegna framkvæmda í stigagangi við Háaleitisbraut.

Við vorum búin að áætla um 20 manns á hverja hæð og þurfum við nú að fækka í húsi skv. nýjum reglum. Allir sem geta unnið heima, vinna heima. Bið ykkur að lagfæra skjalið fyrir kl. 15:00 í dag. Hér er slóð á áætlunarskjalið. 

Nokkur praktísk atriði í lokin;

  • Ekki er heimilt að fá fólk á fundi í Ármúla 2, fundir skulu fara fram í gegnum fjarfundarbúnað.
  • Mötuneytið – matur sendur upp á 2. og 3. hæð. 1. hæðin notar mötuneytið.
  • Óheimilt er að fara á milli hæða. Snorri, Bjössi, Hrafnhildur og TD mega fara á milli hólfa ef þess þarf en bera þá andlitsgrímu.
  • Ef starfsmaður eða heimilisfólk er með einkenni og á leið í pcr próf þá skal halda sig heima þar til niðurstöður berast.
  • Virðum 2m regluna, notum andlitsgrímu þegar þess þarf og verum dugleg að spritta okkur.

Ef það eru einhverjar spurningar þá ekki hika við að senda póst á Ólöfu starfsmannastjóra eða á laun@samgongustofa.is.