Gullberg VE skoðað

Nýtt skip Vinnslustöðvarinnar (VSV) kom til hafnar í Vestmannaeyjum í gærmorgun og mun fá nafnið Gullberg VE 292. Það er keypt frá Noregi og hét áður Garðar. Skipið er 70 metra langt, þrettán metra breitt og lestarplássið er 2.100 rúmmetrar. Garðar á sér sögu á Íslandi, annars vegar sem Margrét EA í eigu Samherja og hins vegar sem Beitir NK í eigu Síldarvinnslunnar.

Starfsmaður skipaeftirlitsdeildar er í Vestmannaeyjum í dag þar sem hann er að upphafsskoða skipið fyrir skráningu á skipaskrá.