
Mikið er að gerast í ráðningum þessa dagana hjá Samgöngustofu. Hér fyrir neðan má sjá ráðningar sem búið er að ganga frá. Hlökkum til að taka á móti öllu þessu fólki.
Kristján L. Kristjánsson var ráðinn í starf skipaeftirlitsmanns og mun hefja störf 27. október nk. Kristján er menntaður stálskipasmiður og hefur lokið diploma í véliðnfræði. Undanfarið hefur hann starfað sem skipaskoðunarmaður í skipaskoðunardeild Frumherja.
Kolbeinn Arnarson var ráðin í starf sérfræðings í deild stjórnunarkerfa og alþjóðamála og mun hefja störf 1. nóvember nk. Kolbeinn er með BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hann starfar í dag sem sérfræðingur hjá Landgræðslunni. Hann er þar verkefnastjóri innleiðingar Grænna skrefa í ríkisrekstri. Hann sér einnig um að safna og miðla styrkveitingargögnum stofnunarinnar út frá kynjasjónarmiðum. Önnur verkefni sem hann hefur komið að eru loftslagsmál, gæðamál og fræðslumál.
Dröfn Gunnarsdóttir var ráðin í starf fagstjóra stjórnsýslusviðs og mun hefja störf 1. nóvember nk. Dröfn er með B.Sc. í alþjóðlegri markaðsfræði og M.Sc. í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík. Dröfn hefur starfað frá árinu 2016 sem sérfræðingur á skrifstofu stefnumótunar og fjárlaga hjá Innviðaráðuneytinu.
Bjarklind Björk Gunnarsdóttir var ráðin í starf sérfræðings í öryggis- og fræðsludeild og mun hefja störf 23. nóvember nk. Bjarklind er með BS próf í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún starfar í dag sem ráðgjafi á geðsviði Landsspítalans. Hefur einnig starfsreynslu af fræðslustarfi með unglingum.
Hörður Sigurðarson var ráðinn í starf eftirlitsmanns í lofthæfi- og skrásetningardeild og mun hefja störf 1. desember nk. Hörður er með sveinspróf í flugvirkjun frá Colarado Aero Tech. Í dag starfar hann sem tæknistjóri hjá Bláfugli ehf. og Flugfélagi Austurlands.
Daði Magnússon var ráðinn í starf forritara í upplýsingatæknideild og mun hefja störf 3. janúar í Vestmanneyjum. Daði er með B.Sc. í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hann hefur starfað sem forritari frá árinu 2011. Í dag starfar hann hjá Smartmedia.