Föstudagslagið í boði Þorsteins

Það er hann Þorsteinn í öryggis- og fræðsludeild sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt skrifar Þorsteinn:

Þegar ég fékk áskorun frá Snorra kom í huga mér lagið „Moonlight shadow“ eftir Mike Oldfield. Lagið fjallar um þjóðsöguna um Saturski sem missir elskhuga sinn Hitoshi skyndilega. Hún á erfitt með að komast yfir dauða hans og til verður sagan um að hægt sé að hitta þá látnu við enda á fullu tungli. Í textanum er fjallað um mann sem er skotinn með 6 skotum um miðja nótt og hvernig ekkja hans sér hann í skugga mánans og úr verður draugasaga.

Lagði er sungið af Maggie Reilley sem var samstarfskona Mike Oldfield. Þess má til gamans geta að í tengslum við lagið kom upp sá orðrómur að lagið fjallaði um dauða John Lennon í New York árið 1980. En lag Mike Oldfield sungið af Maggie Reilley kom út árið 1983. Um þetta sagði Mike Oldfield:

„Nei en kannski þegar ég hugsa til baka. Ég var í New York þetta kvöld og gisti í íbúð rétt hjá þar sem það gerðist. Og kannski fór það í undirmeðvitundina. En í raun er það byggt á bíómynd um töframanninn Harry Houdini sem ég sá og tilraunir til að reisa hann frá dauðum. En Harry Houdini var ekki skotinn heldur lést að öllum líkindum af matareitrun árið 1926.“

Ég skora á Stefán Alfreðsson að koma með næsta föstudagslag en þangað til njótið: