Föstudagslagið í boði Hugrúnar Óskar

Gwen Stefani Reveals If No Doubt Will Ever Reunite Again | iHeart

Það er hún Hugrún Ósk í NorType sem velur föstudagslagið þessa vikuna. Um val sitt segir hún:

Þrátt fyrir hótanir samstarfsfélaga minna um að ég yrði síðasta manneskjan sem væri skorað á, sökum arfaslaks tónlistarsmekks (að þeirra mati), þá er komið að mér að láta ljós mitt skína. Ég þakka Óskari fyrir að hafa trú á mér.

Í þessum töluðu orðum ligg ég í sólinni á Tenerife. Það hefði því legið beinast við að splæsa í lög eins og Sandalar með Ladda, nú eða Sólarsamba með Magga Kjartans. Ég hugsa að ég væri þá ekki að vinna mér inn nein stig frá samstarfsfélögum mínum svo ég læt það vera, í bili.

Þetta var alls ekki einfalt val. Ég hlusta mikið á Rammstein og HAM, sem er helsta ástæða athugasemda téðra samstarfsfélaga. Mig klæjar í puttana að velja lag með þeim hljómsveitum en ég er ekki alveg viss um að það myndi slá í gegn hér, svo ég geymi það til betri tíma bara. Í þau (ör)fáu skipti sem ég fæ tækifæri til að stjórna tónlist í gleðskap er mitt fyrsta val alltaf tónlist frá því í kringum 1980 (+/-). Ég viðurkenni samt að það hefur ekki alltaf slegið í gegn þegar ég set á lög eins og Wuthering heights með Kate Bush. Það eru kannski einhverjir vina minna sammála samstarfsfélögum mínum… Mitt næsta val til að reyna að vinna til baka vinsældar-stigin sem ég tapaði með elsku Kate Bush er þá tónlist Lizzo eða Lil Nas X, en ég veit ekki hvort myndbönd þess síðarnefnda myndu vekja lukku inná innri vef ríksstofnunnar.

En nú að föstudagslaginu. Ég er pjúra „millenial“ og ólst upp í níunni eins og sumir kalla það. Ég hlustaði mikið á tónlist með eldri systur minni því það var jú, allt töff sem hún gerði. Ég get samt ekki annað en hlegið þegar ég sé fyrir mér mig 8 ára að öskursyngja með hljómsveitum eins og No Doubt, Skunk Anansie og fleirum, í bleika herberginu mínu, umkringd nýklipptum barbídúkkum.

Mig langaði því að velja lag sem hefur fylgt mér lengi og vekur upp góðar minningar; lagið Don‘t speak með hljómsveitinni No doubt. Ég man eftir að horft aðdáunaraugum á söngkonuna Gwen Stefani, án þess að hafa minnstu hugmynd um hvað hún var að syngja.

Ég skora svo á Nínu í NorType til að velja lag næst.
Vonandi njótið þið dagsins, kveðja úr sólinni!