Fyrir jól skoraði Trausti Ægir Ólafsson á Guðna Jónsson að koma með næsta föstudagslag. Guðni á því fyrsta lag ársins og um val sitt segir Guðni:

Hérna er föstudagslagið frá mér. Lagið heitir ‘’Riff Raff” með hjómsveitinni AC/DC sem ég er búinn að hlusta á frá fermingaraldri, hérna er enginn flókinn textagerð í gangi heldur bara hrátt rokk sem kemur blóðinu á hreyfingu.
Ég skora á Kristinn Jóhannesson að koma með næsta föstudagslag.