
Embætti forseta Íslands er ekki bara táknrænt heldur líka mikilvægt fyrir þjóðina. Embættið táknar sameiningu og stöðugleika og er mikilvægur þáttur í að viðhalda lýðræðislegum gildum landsins.
Kosningarétturinn er ekki sjálfsagður réttur. Hann er mikilvægur hluti af lýðræðinu okkar og gefur hverjum og einum tækifæri til að hafa áhrif á framtíð þjóðarinnar. Því er brýnt að nýta þennan rétt og taka þátt í kosningum.
Okkar stofnun er ákveðinn þverskurður af samfélaginu og endurspeglar fjölbreytni þess. Af þeim sökum bjóðum við ykkur nú að taka þátt í skuggakosningu og hvetjum starfsfólk til að kjósa hér að neðan. Svörin eru ekki rekjanleg og þátttaka er mikilvæg til að tryggja réttmæti niðurstaðna.
Ef ég héldi því fram að skuggakosningin væri hávísindaleg myndi ég eflaust fá svartan blett á tunguna. Einn stór vankantur er á henni: það eru engin takmörk á því hve oft hver og einn getur kosið. Nú vil ég höfða til samvisku samstarfsfólks mín og biðla til ykkar að misnota þennan vankant könnunarinnar ekki. Plís!
Niðurstöður könnunarinnar verða birtar á innri vef eftir hádegi á morgun, föstudag. Nýtið kosningaréttinn og kjósið rétt!
Create your own user feedback survey