Fjölbreytt og krefjandi

Starf hafnarríkiseftirlitsmanna er mjög fjölbreytt og á stundum krefjandi.

Eitt af því sem þarf stundum að gera er að kyrrsetja skip ef þau uppfylla ekki þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt alþjóða samþykktum og reglum. Sem betur fer þarf hafnarríkiseftirlitið ekki oft að grípa til svo róttækra aðgerða en í gær var skip kyrrsett í Þorlákshöfn vegna athugasemda sem gerðar voru varðandi öryggis skips og áhafnar. Skipið sem um ræðir heitir NM Copenhagen, 4255 GT. Heimahöfn skipsins er Madeira Portugal en það kom til Þorlákshafnar frá Andverpen fulllestað af stálrörum.

Þar sem skipið var ekki útbúið með ECDIS (Electronic Chart Display and Information System) hefðu nákvæm sjókort af siglingarleið skipsins þurft að vera um borð. Sjókort sýna m.a. ljósvita, staðsetningar á grynningum, skerjum, duflum, neðansjávarköplum og gefa aðrar nauðsynlegar upplýsingar til að tryggja örugga siglingu fyrir skip, áhöfn og umhverfi. 

Áður en skip leggur úr höfn þarf skipstjóri að gera siglingaráætlun um fyrirhugaða ferð. Hún tryggir að skipið fari ekki inn á hættusvæði eða svæði þar sem skipaumferð er hreinlega bönnuð. Eitt af því sem beðið er um í skoðunum er að fá að sjá siglingaáætlun skipsins til landsins.

Þegar beðið var um þessar upplýsingar í gær var fátt um svör. Við eftirgrennslan kom í ljós að skipið var einungis með eitt sjókort af Íslandi og var það sambærilegt við það sem má sjá á mynd hér fyrir neðan.  Var skipið samstundis kyrrsett og skipstjóra tilkynnt að skipið færi ekki af stað fyrr en sjókort af því svæði  sem skipið áætlaði að sigla á væru komin um borð og staðfesting þar að lútandi hefði borist Samgöngustofu.