Ráðstefnan EU Safety 2023 fór fram fyrir helgi. Slysavarnafélagið Landsbjörg í samvinnu við Eurosafe og Heilbrigðisráðuneytið, stóðu fyrir ráðstefnunni sem haldin var á Hilton Reykjavík Nordica, dagana 5.-6. október. Nokkrir starfsmenn Samgöngustofu mættu og fræddust um fjölbreytt öryggis- og forvarnarmál. Gunnar Geir hélt erindi á ráðstefnunni um forvarnir í umferðinni sem miðast að ferðamönnum. Þar talaði hann meðal annars um verkefni Samgöngustofu, Nap and Go, sem hefur gengið vel og vakið mikla jákvæða athygli.
