Endurbætur á vefnum www.sjolag.is – óskað eftir ábendingum

Frá Vegagerðinni:
Vegagerðin vinnur í stöðugum endurbótum á vefnum www.sjolag.is sem hefur verið í loftinu í um 2 ár. Fyrst um sinn fékk Vegagerðin margar ábendingar sem voru mjög góðar og þarfar.

Nú stendur til að gera úrbætur á vefnum og mun norður heimskautið verða aftur birt á honum líkt og þekktist á eldri vef Siglingastofnunar.

Mikilvægt er að vefurinn hannaður fyrir ykkur sem notendum og því eru ykkar ábendingar mjög mikilvægar til þess að þróa vefinn eins vel og kostur er.

Hugmyndir sem við höfum fengið eru t.d.

  1. Birting nýrra tilkynninga til sjófarenda.
  2. Betri sýn yfir gögn á hliðarstikunni.
  3. Lite útgáfa

Okkur þætti vænt um það hvort þið getið talað við ykkar fólk sem nota vefinn og beðið þau að skoða þetta og koma með ábendingar til okkar fyrir 15. mars 2023.

Mikilvægt er að fá endurgjöf frá útgerðunum og sjómönnum sem nota vefinn og bið ég ykkur einnig um að koma því áfram á þær útgerðir sem eru með aðstöðu hjá ykkur.

Ábendingar er hægt að senda á: hafnir@vegagerdin.is.

Ef það vakna einhverjar spurningar þá er óhætt að hringja í Fannar Gíslason forstöðumann hafnadeildar hjá Vegagerðinni:

Fannar Gíslason
Forstöðumaður Hafnadeildar
Hafnadeild

Head of Harbour Division
Harbour Division
fannar.gislason@vegagerdin.is


+354 522 1425
+354 897 7104