Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá er mikið af frábæru myndefni að koma úr drónum frá eldstöðvunum. Mikill fjöldi „drónaflugmanna“ hefur safnast á svæðið eins og í gosinu í fyrra og getur flug dróna valdið hættu, ef ekki er farið eftir settum reglum, þegar mönnuð loftför fljúga yfir svæðið. Því ákváðum við í síðustu viku að árétta í fjölmiðlum og samfélagsmiðlum mikilvægi þess að drónaflugmenn fari eftir settum reglum og þá helst að gæta þess að fara aldrei yfir 120 metra frá jörðu og að þeim ber ávallt að víkja frá mönnuðum loftförum. Eftirfarandi er frétt af vefnum okkar, en hluti af henni birtust í fjölmiðlum í liðinni viku. Það er ágætt fyrir okkur sem hér störfum að vera meðvituð um þessar reglur, t.d. ef við erum sjálf að fljúga dróna í okkar frítíma:

Nú þegar eldgos er hafið að nýju á Reykjanesi vill Samgöngustofa, að gefnu tilefni, árétta reglur sem gilda um drónaflug. Þær eru settar til að tryggja öryggi, t.d. aðgreiningu dróna og annarra loftfara:
- Drónar skulu EKKI fljúga hærra en 120 m yfir jörðu
- Drónar skulu víkja fyrir mönnuðum loftförum
- Dróna má ekki fljúga utan sjónsviðs stjórnanda hans
- Umráðandi dróna ber ábyrgð á því tjóni sem kann að hljótast af notkun hans
- Til dróna í atvinnuskyni eru gerðar frekari kröfur, til dæmis um skráningu
Verði vart við brot sem geta stefnt öryggi í hættu gæti þurft að grípa til þess að setja verulegar takmarkanir eða bann við drónaflugi við eldstöðina.
Rannsóknarflug í forgangi
Vegna eldgossins má búast við reglubundnu rannsóknarflugi flugvéla og þyrlna á vegum stjórnvalda við eldstöðina. Flugið er í þágu almannavarna og vísinda og mun njóta forgangs fram yfir annað flug.
Til að tryggja öryggi verður svæði skilgreint sem hættu- eða haftasvæði fyrir starfrækslu flugvéla og þyrlna. Samhliða þessu verður skilgreint bannsvæði fyrir dróna á meðan rannsóknarflugið fer fram. Hætt er við að stuttur fyrirvari verði á slíku og mun umfang og gildistími markast af aðstæðum hverju sinni.
- Stjórnendur dróna skulu fylgjast með nýjustu tilkynningum um slíkt bannsvæði á vef Almannavarna . Upplýsingar verða reglulega uppfærðar þar.
- Hættu- eða haftasvæði fyrir loftför önnur en dróna verða auglýst með NOTAM.
- Jafnframt er bent á upplýsingar í flugmálahandbók AIP og gagnlegar upplýsingar og reglur um drónaflug.