Dagur verkfræðinnar á morgun

Dagur verkfræðinnar á morgun

Verkfræðingafélag Íslands fagnar 110 ára afmæli um þessar mundir og á morgun, föstudaginn 21. október kl. 13-17, verður haldin ráðstefna á Hilton Reykjavík Nordica. 

Fyrir liggur áhugaverð dagskrá þar sem fyrirlestrar og kynningar fara fram í þremur opnum sölum. 

Markmiðið með Degi verkfræðinnar er að kynna verkfræðina, störf verkfræðinga og tæknifræðinga og ekki síst efla tengsl og samheldni meðal þeirra. 

Hægt er að skrá sig hér