Átak gegn slysum á sjó – 12 hnútar

Við höfum nú hafið átak gegn slysum á sjó í samstarfi við Slysavarnarfélagið Landsbjörg og nefnist átakið 12 hnútar. 12 hnútar er listi yfir tólf algenga þætti sem geta leitt til slysa eða atvika til sjós. Síða átaksins er www.samgongustofa.is/12 hnutar.

Fjölmargir hagaðilar taka þátt í verkefninu og gefin verða út tólf veggspjöld á árinu 2022 sem miða að því að auka vitund og umræðu um öryggismál sjófarenda.

Fyrirmyndin er sambærilegt verkefni „The Dirty Dozen“ sem er listi yfir tólf algengustu mannlegu þættina sem leitt geta til slysa eða atvika í flugtengdri starfsemi.

Veggspjöldin tólf verða birt á síðunni jafnóðum og send á hagaðila sem tengjast siglingum. Hægt er að vista veggspjöldin, senda áfram, prenta út eða miðla á þann hátt sem hentar best þannig að öflug og góð dreifing náist.

Í dag birtist eftirfarandi frétt á mbl.is um átakið:

Hefja átak gegn slysum á sjó

Sam­göngu­stofa, í sam­starfi við Slysa­varna­fé­lagið Lands­björg og fjölda aðila í sjáv­ar­út­vegi, vinn­ur að út­gáfu tólf ra­f­rænna vegg­spjalda sem hlotið hafa nafnið „12 hnút­ar“. Fyrsta spjaldið var gefið út í gær og síðan eitt í hverj­um mánuði þar eft­ir fram að lok­um árs.

„Til­gang­ur þessa verk­efn­is er að fjalla um og und­ir­strika ýmsa þá mann­legu þætti sem oft leiða til slysa á sjó. Stór­lega hef­ur dregið úr al­var­leg­um slys­um á sjó og þykir nú orðið tíðind­um sæta ef bana­slys verður. Hins veg­ar eiga sér enn stað at­vik sem leitt geta til al­var­legra slysa. Oft eru þetta af­leiðing­ar til­tek­inna viðhorfa, af­stöðu, úr­eltra venja og ým­iss ann­ars í mann­legri hegðun sem aukið geta lík­urn­ar á slys­um,“ seg­ir í tölvu­pósti Ein­ars Magnús­ar Magnús­son­ar, sér­fræðings á ör­ygg­is- og fræðslu­deild Sam­göngu­stofu, til blaðamanns.

„Með 12 hnút­um vilj­um við upp­ræta þessi atriði en á spjöld­un­um er getið um fyr­ir­byggj­andi aðgerðir sem við von­um að sjó­menn til­einki sér,“ skrif­ar hann.

Ein­ar Magnús seg­ir verk­efnið unnið í sam­starfi við fjölda aðila og að enn sé að bæt­ast við þann hóp. Hand­rit og gerð spjald­anna var unnið í sam­vinnu við Slysa­varna­skóla sjó­manna.

Vilja fleiri með sér í lið
Þeir sem þegar hafa lagt nafn sitt við verk­efnið eru: Brim hf., Fé­lag skip­stjórn­ar­manna, FISK Sea­food, Hafna­sam­band Íslands, Land­helg­is­gæsl­an, Slysa­varna­fé­lagið Lands­björg, Sam­tök aðila í ferðaþjón­ustu, Sam­tök fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, Sjó­manna­sam­band Íslands, VM – fé­lag vél­stjóra og málm­tækni­manna, Vinnslu­stöðin hf., Vis­ir hf. og Þor­björn hf.

Að lok­um hvet­ur Ein­ar Magnús fyr­ir­tæki, stofn­an­ir og fé­lög sem tengj­ast sjáv­ar­út­vegi og hafa áhuga á að leggja nafn fyr­ir­tæk­is síns eða sam­taka við út­gáf­una að hafa sam­band við Sam­göngu­stofu.