Áfengismælingar

Þeir Rafn og Þröstur framkvæmdu áfengismælingarnar eftir öllum kúnstarinnar reglum. Myndin var tekin á Keflavíkurflugvelli í morgun. Áhöfn Jet2.Com var prófuð og reyndist allt í fína lagi. Áhöfnin var mjög samvinnugóð og fagnaði því að þessi próf væru gerð.

Eftirlitsmenn Samgöngustofu framkvæmdu fyrstu áfengismælinguna á áhöfn í dag. Flugmennirnir og ein flugfreyja í þessari vél voru fyrstu viðfangsefni áfengismælinganna.

Öll voru þau neikvæð en ótrúlega jákvæð fyrir mælingunni 🙂

Nánar um áfengisprófin

Prófin eru tekin af hlaðskoðunarmönnum (ramp inspectors) og í dag að tekið var áfengispróf af áhöfn erlendrar flugvélar sem hafði stutta viðkomu á Keflavíkurflugvelli. Áfengispróf flugáhafna eru gerð eftir fyrirfram ákveðnu áhættumati sem Flugöryggisstofnun Evrópu EASA hefur gert á flugrekendum. Þær hafa verið við lýði á meginlandi Evrópu um skeið en nýlega skapaðist lagagrundvöllur fyrir þeim hér á landi.

Allir fjórir eftirlitsmennirnir hafa farið á námskeið í verkferlum Samgöngustofu vegna áfengis- og fíkniefnaprófa, auk þess að fara á námskeið hjá Fræðslu- og starfsþróunarsetri Ríkislögreglustjóra um áfengis- og fíkniefnapróf og námskeið í notkun nýjustu áfengismæla og fíkniefnaprófana hjá innflytjenda þessara mæla en fyrirhugað er að taka einnig fíkniefnapróf af flugáhöfnum. Næsta haust fara eftirlitsmennirnir svo á fíkniefnanámskeið hjá Ríkislögreglustjóra.

Megináhersla er lögð á prófun erlendra áhafna sem hafa viðdvöl hér en einnig má búast við fyrirvaralausum prófum hjá íslenskum flugrekendum og einkaflugmönnum.