
Fyrr í þessum mánuði fóru starfsmenn siglingasviðs Samgöngustofu í árlega úttekt hjá gúmmíbátaþjónustu Hampiðjunnar í Neskaupstað. Endurnýja þurfti starfsleyfi stöðvarinnar eftir að nýr starfsmaður lauk þjálfun í eftirliti gúmmíbáta. Við skoðunina var farið yfir að starfsemi gúmmíbátaþjónustunnar væri samkvæmt ákvæðum reglugerða.
Á þjónustustöð eru fjölmörg skoðunaratriði tekin út. Til að mynda leyfi frá framleiðendum til skoðunar á þeim búnaði sem á að þjónusta, hvort skoðunarskýrslur séu rétt útfylltar og rétt geymdar, hvort öll leyfi séu í gildi, varahlutir í þann búnað sem skoðaður er sé til staðar, hvort verkfæri og búnaður sem notast þarf við skoðanir sé til staðar, kvarðanir/löggildingar þar sem við á og hvort starfsaðstaðan sé samkvæmt gildandi reglum.
Í dag eru fimm starfsstöðvar sem sinna gúmmíbátaþjónustu. Eru þær staðsettar víðsvegar um land: Í Stykkishólmi, á Ísafirði, Neskaupstað, Vestmannaeyjum og Hafnarfirði.