
Síðastliðið haust fóru skipaskoðunarmenn Samgöngustofu til Gijon á Spáni til að framkvæma upphafsskoðun á Huldu Björnsdóttur GK-11, nýjum og fullkomnum ísfisktogara fyrir útgerðina Þorbjörn hf í Grindavík. Upphafsskoðun er forsenda þess að skip séu skráð á íslenska skipaskrá og fái útgefin viðeigandi skírteini. Við upphafsskoðun er meðal annars farið yfir samþykkt öryggisplan skipsins og staðfest að öryggis- og björgunarbúnaður sé á réttum stöðum og uppfylli kröfur. Raunverulegt fyrirkomulag brunakerfa, siglingarljósa og vinnsluþilfars er borið saman við teikningar, fylgst með smíðaeftirliti flokkunarfélagsins og síðast en ekki síst gerðar prófanir á björgunar- og öryggisbúnaði.
Skipið er hannað af Sævari Birgissyni skipatæknifræðingi hjá verkfræðistofunni Skipasýn ehf. í samvinnu við starfsfólk Þorbjarnar hf. Hönnunin miðar að sparneytni og umhverfisvernd. Aðalvél skipsins (um 2400 kW) knýr fimm metra skrúfu sem snýst á lægri snúningshraða en áður hefur þekkst í svipuðum fiskiskipum. Þetta eykur orkusparnað og dregur úr umhverfisáhrifum. Skipið verður útbúið til að draga tvo botnvörpur samtímis, og togvindurnar verða rafknúnar.