Fundað með fluglæknum

Í vikunni fór fram hjá Samgöngustofu samnorrænn fundur fluglækna. Um árlegan fund er að ræða. Í ár hittust fluglæknar og starfsfólk skírteinadeilda flugmálastjórna Noregs, Svíþjóðar og Finnlands ásamt okkar fólki til að fara yfir málin.

Umræðuefnið er víðfeðmt enda af nógu að taka. Farið var yfir tölfræði þjóðanna, eftirlitsþátturinn ræddur, breytingar á reglugerðum og fluttir fjölbreyttir fyrirlestrar um þetta sérhæfða fag sem heilbrigðisvottun flugverja er. Fundurinn er mikilvægur vettvangur fulltrúa til að bera saman bækur sínar, læra hver af öðrum og fá stuðning við úrlausn flókinna mála.