
SVEF, Samtök vefiðnaðarins, heldur sína árlegu uppskeruhátíð föstudaginn 21. mars nk. Þar verða veitt íslensku vefverðlaunin og er vefur Samgöngustofu og 66°Norður, www.sjaumst.is, tilnefndur í tveimur flokkum; Markaðsvefur ársins og Samfélagsvefur ársins.
Vefurinn er tengdur átekinu sem við fórum í nú í byrjun árs með 66°N sem kallaðist Sjáumst // EKKI þar sem hvatt var til notkunar endurskinsmerkja og endurskinsfatnaðar en það átak var sjálfstætt framhald Sjáumst átaksins sem farið var í fyrir ári síðan.
Aðrar tilnefningar má sjá hér: https://www.visir.is/g/20252697054d/tilnefningar-til-islensku-vefverdalaunanna-i-beinni