Tillögur um breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur í samráðsgátt

Drög að frumvarpi um breytingu á lögum um leigubifreiðaakstur hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Helstu breytingar eru eftirfarandi:

  1. Felld er brott heimild rekstrarleyfishafa til að reka leigubifreiðastöð án starfsleyfis leigubifreiðastöðvar þar sem ein leigubifreið sem hann er skráður eigandi eða umráðamaður að hefur afgreiðslu.
  2. Kveðið er á um skyldur rekstrarleyfishafa til að veita leigubifreiðastöð nauðsynlegar upplýsingar svo að leigubifreiðastöðin geti fullnægt eigin skyldum.
  3. Skyldur leigubifreiðastöðvar eru auknar og tilgreindar þær upplýsingar sem leigubifreiðastöð skal búa yfir.
  4. Leigubifreiðastöð er gert að taka við upplýsingum úr rafrænni skrá um upphafs- og endastöð hverrar seldrar ferðar rekstrarleyfishafa sem hefur afgreiðslu á stöðinni, um staðsetningu á meðan á ferðinni stendur og um greiðslu sem skráð er í gjaldmæli eða með öðrum fullnægjandi hætti að ferð lokinni.
  5. Skyldur til varðveislu gagna í 60 daga eru alfarið færðar frá rekstrarleyfishafa til leigubifreiðastöðvarinnar. Kveðið er á um árlega úttekt stafrænna kerfa leigubifreiðastöðvar svo að öryggi og gæði gagna séu tryggð.
  6. Leigubifreiðastöð er gert að bjóða farveg fyrir kvartanir neytenda um verð og gæði þjónustu. Leyfishöfum er um leið gert að upplýsa og leiðbeina neytendum um þann möguleika og möguleika til að kvarta til annarra viðeigandi stjórnvalda.

Sjá nánar í frétt á vef innviðaráðuneytisins.