
Á þriðjudag fengum við heimsókn frá frændum okkar í Noregi. Þar á bæ hefur vetrarferðamennska aukist til muna á skömmum tíma og samhliða því hefur slysum á erlendum ferðamönnum að vetri til fjölgað töluvert. Þau komu því til okkar til þess að læra af okkur og heyra hvernig við hefðum brugðist við þeirri aukningu sem við sáum í vetrarferðamennskuslysum fyrir um 10 árum síðan. Hópurinn var skipaður fulltrúum frá Trygg Trafikk (norska umferðaröryggisráðið), norsku vegagerðinni, samtökum atvinnulífsins í Noregi, félagi bifreiðaeigenda í Noregi og lögreglunni í N-Noregi. Einnig kom með þeim gestur frá Íslandsstofu sem hefur haldið utan um ferð hópsins hér á landi.
Hópurinn var ánægður með fundinn og við gátum gefið þeim góð ráð um hvernig best er að snúa sér í þessu en einnig hvað ber að varast. Það er alltaf gott að geta miðlað af reynslu og vonandi höfum við hjálpað til við að draga úr slysum á erlendum ferðamönnum að vetri til í Noregi.