Alþjóðaflugmálastofnunin (ICAO) hefur ákveðið að helga 20. febrúar ár hvert sem minningardag tileinkaðan fórnarlömbum flugslysa og aðstandendum þeirra. Ísland hefur átt aðild að ICAO síðan árið 1947 og tekið þátt í að hlúa að hagsmunum í flugmálum og flugöryggi á alþjóðavettvangi.
Á þessum fyrsta minningardegi verður dagurinn kynntur um allan heim í gegnum samfélagsmiðla og á sérstakri ICAO sjónvarpsrás. Ísland hefur átt aðild að ICAO síðan árið 1947 og tekið þátt í að hlúa að hagsmunum í flugmálum og flugöryggi á alþjóðavettvangi. Áhersla verður lögð á að 193 aðildarríki ICAO komi á formlegum stuðningi við þá sem hafa lent í flugslysum og aðstandendur þeirra.
Sjá nánar um alþjóðlegan minningardagur tileinkaður fórnarlömbum flugslysa og aðstandendum þeirra á vef ICAO
#AirCrashVictimsDay
https://bit.ly/3gWawGC
