Fundur um sleppibúnað björgunarbáta

Þriðjudaginn 4. febrúar hélt Samgöngustofa fund með aðilum frá hagsmunasamtökum sjómanna, útgerðarmönnum, Rannsóknarnefnd samgönguslysa, samgöngu-og sveitarstjórnarráðuneyti og öðrum hagaðilum. Þar varð farið yfir vandmál við losun gúmbjörgunarbáta þegar bátar velta. Einkum felast þau í því að sjálfvirkur sleppibúnaður virkar ekki fyrr en báturinn sem valt er kominn á fjögurra metra dýpi.

Frumkvæðisathugun Samgöngustofu byggir á fjölda tilfella báta sem hefur hvolft en sökkva ekki strax og því losnar björgunarbáturinn seint eða ekki. Ástæðan er að fleiri bátar eru nú smíðaðir úr plasti. Rannsóknarnefnd Samgönguslysa hefur gert tillögur í öryggisátt og ábendingar í kjölfar þeirra slysa.

Á fundinum kynnti Joakim Unosson lausn sem fyrirtækið Hammar hefur þróað til að losa björgunarbáta þegar halli báts er orðinn yfir 90%. Hammar hefur selt Viking Life-Saving Equipment A/S þennan búnað og hefur hann verið settur í um 1000 báta erlendis. Hér á landi hefur umboðsaðili fyrirtækisins sett búnaðinn í einn bát til að skoða virkni hans.

Fundurinn vakti athygli og umræður voru góðar. Samgöngustofa var hvött til að skoða ítarlegar reynslu af þessum nýja búnaði.