
Síðastliðið vor kynnti Fjármála- og efnahagsráðuneytið breytta framkvæmd þjónustukannana fyrir stofnanir. Framkvæmdin býður upp á rauntímamælingu á þjónustu með það að markmiði að ná betur til notenda þjónustunnar. Kostir slíkra rauntímamælinga eru meðal annars þeir að notendur eru spurðir um upplifun sína stuttu eftir að þjónustan hefur verið veitt og því er upplifun notenda enn í fersku minni. Með rauntímamælingum gefst okkur tækifæri til að rýna niðurstöður í það minnsta mánaðarlega og því er hægt að sjá fljótlega hvort þjónusturof sé til staðar eftir mánuðum. Viðmótið er einfalt og við reiknum með fleiri svörum en áður.
Samgöngustofa hefur innleitt nokkrar dreifileiðir fyrir könnunina. Í afgreiðslu er að finna QR-kóða sem vísar á könnunina, bæði við setusvæðið og við afgreiðsluborð. Eins fá notendur sendan hlekk á könnunina þegar erindum er lokið á vefnum okkar, en nýjasta dreifileiðin er í gegnum spjallmennið. Þegar netspjalli er lokið fær notandi einnig sendan hlekk og beiðni um að svara könnuninni. Framkvæmdin gefur okkur tækifæri til að greina umbótatækifæri og bæta þjónustu okkar til framtíðar.