Fréttir af ráðningarmálum

Í lok desember sl. var gengið frá tveimur ráðningum hjá Samgöngustofu;

Berglind Ýr Jónasdóttir var ráðin sem deildarstjóri flugreksturs- og skírteinadeildar. Berglindi hefur undanfarin tvö ár starfað sem sérfræðingur í flugrekstrar- og skírteinadeild Samgöngustofu. Þar áður starfaði hún sem sérfræðingur á flugrekstrarsviði hjá Wow air. Auk þess hefur hún starfað sem flugkostnaðarstjóri og flugfreyja hjá Wow air og Iceland Express. Berglind Ýr tók við starfinu 1. janúar sl.

Benedikt G. Waage var ráðinn sem sérfræðingu í deild siglinga- og hafnaeftirlits. Benedikt starfar í dag sem sérfræðingur í gæðadeild Nox Medical. Auk þess starfaði hann hjá Neytendastofu sem tæknilegur ábyrgðarmaður í mælifræði í 14 ár. Benedikt mun hefja störf 1. mars nk.