
Fyrir rúmu ári hóf Samgöngustofa kynningu á ábendingakerfinu Bendli í kjölfar þess að umbótahópur hafði verið skipaður til að fylgja verkefninu úr hlaði og koma umbótaverkefnum í farveg. Undirtektir voru góðar og enn er unnið að því að þróa verklagið. Starfsfólk hefur spurt hvað verði um ábendingarnar og hvort tekið sé mark á þeim. Stutta svarið er já, en eins og ávallt gildir um innleiðingu þá er það þolgæðið sem skiptir máli. Skemmst er frá því að segja að á þessu ári hafa borist 73 ábendingar og þar af 13 frá ytri aðilum.
Á meðal þeirra ábendinga sem hafa verið innleiddar eru meðal annars að bæta við kennslu á hönnunarstaðli Samgöngustofu og að kynna betur undirskriftir í tölvupósti við nýliðakynningu. Önnur er svo að hafa minna áberandi merkingar á völdum bílum Samgöngustofu vegna ótilkynnts eftirlits og brugðist hefur verið við báðum þessum ábendingum. Dæmi um stærri tillögur sem hafa komið í gegnum ábendingakerfið er meðal annars að þverfaglegir verkefnahópar verði settir á laggirnar og að skilvirkari stýring verkefna verði innleidd.
Starf umbótahópsins, uppbygging á virku stjórnunarkerfi og stöðugar umbætur sem kynntar voru á stefnumótunarfundinum á Nordica í vikunni eru staðfesting á að ekki verður staðar numið. Við ætlum að halda áfram í að gera vinnustaðinn enn betri og ábendingakerfið Bendill er öflugt verkfæri í þeirri vegferð.