Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa á sunnudaginn

Sameinuðu þjóðirnar hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember alþjóðlegum minningardegi um fórnarlömb umferðarslysa og er sá dagur næsti sunnudagur. Á Íslandi höfum við haldið minningarathöfn þar sem við m.a. þökkum viðbragðsaðilum og heilbrigðisstarfsfólki fyrir þeirra þátt í umferðaröryggi. Í ár verður þemað þreyta og svefn undir stýri og munum við m.a. heyra frásögn móður manns sem lenti í mjög alvarlegu slysi í fyrra þar sem svefn ökumanns kom við sögu. 

Lesa má um daginn, dagskrá hans og fleira, á www.minningardagur.is

Athöfnin mun fara fram við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi og hvetjum við öll til að mæta og sýna hluttekningu.