
Eftir tæpa tvo mánuði, eða 1. janúar 2025 verður Ísland fullgilt aðildarríki að Eurocontrol, sem er Evrópustofnun um öryggi í flugleiðsögu með höfuðstöðvar í Brussel. Aðildarviðræður hófust árið 2008, en haustið 2022 var skrifað undir aðlögunarsamning Íslands að Eurocontrol.
Ferlið frá aðlögunarsamningi að fullgildingu er markað nokkrum áföngum. Í dag barst staðfesting þess að utanríkisráðuneyti Belgíu hafi tekið við orðsendingu og fullgildingarskjölum Íslands að Eurocontrol. Það er síðasta skrefið áður en formleg aðild tekur gildi um áramótin.