
Í september var tekin í notkun ný þjónustuhandbók fyrir starfsfólk skráningar og þjónustudeildar. Þjónustuhandbókin er afrakstur rúmlega 6 mánaða vinnu verkefnahóps sem skipaður var áhugasömu starfsfólki deildarinnar. Hópurinn vann undir dyggri verkefnastjórn Unu Bjargar, verkefnastjóra umferðarsviðs.
Markmið verkefnisins var að búa til nýja þjónustuhandbók sem byggir á viðeigandi lögum og reglugerðum, efni skráningarhandbókar, uppfærðu efni úr eldri þjónustuhandbók deildarinnar sem og kröfum sem aðrar deildir og svið hafa sett fram til að tryggja gæði varðandi þjónustu stofnunarinnar.
Þjónustuhandbókar-verkefninu var skipt upp í fjóra fasa og hver fasi tók u.þ.b. einn og hálfan mánuð. Haldnir voru vikulegir stöðufundir þar sem verkefnahópurinn fór yfir hvað gekk vel og hvort það væru einhverjar hindranir í verkefninu sem þyrfti að leysa. Verkefnið var svo endurmetið eftir hvern fasa. Tímalínur verkefnahópsins stóðust og afrakstur verkefnisins er ný, stöðluð, gæðastýrð og handhæg þjónustuhandbók fyrir framlínu skráningar og þjónustudeildar. Hún mun tryggja samræmt verklag innan deildarinnar, góða þjálfun starfsfólks og stuðla að öflugra innra starfi.