
Af húsnæðismálum er þetta helst: Samið hefur verið við Nordic Office of Architecture um gerð þarfagreiningar og forhönnunar í tengslum við endurbæturnar.
Þetta er stór norræn stofa sem starfar á Íslandi, Noregi og í Danmörku, með farsæla reynslu og mikla burði. Nú þegar hafa verið lögð fram drög að ferli og dæmi um tímalínu. Hluti af ferlinu eru tvær vinnustofur sem verða haldnar með fulltrúum starfsfólks af hverju sviði.
Gera má ráð fyrir að þessi fyrsti fasi, þarfagreining og forhönnun, geti tekið um fjóra mánuði.