
Talsverð umfjöllun hefur verið í fjölmiðlum um eftirlit lögreglu með leigubílum um helgina. Lögreglan kannaði þá leyfi 105 leigubíla og ökumanna þeirra. Í næstum helmingi tilfella voru gerðar athugasemdir sem lögregla mun fylgja eftir.
Guðrún Huld, starfsmaður Samgöngustofu, var með í för til að styðja við aðgerðirnar og leiðbeina um lög og reglur sem gilda um leyfi til leigubílaaksturs. En skv. lögum sér lögregla um vettvangseftirlit með leigubílaakstri en Samgöngustofa sinnir stjórnsýslueftirliti.
Eftirlitið sneri m.a. að því að kanna hvort tilskilin leyfi væru til staðar og hvort leyfishafar og leigubílar uppfylla skilyrði um:
- auðkenningu leigubíla
- gjaldmæla
- sýnileika verðskrár og leyfisskírteinis
- rafræna skrá
- aðbúnaður leigubíls
- skráning leigubíls
- góða viðskiptahætti