
Ert þú til í að taka þátt í og stuðla að árangurs- og umbótamiðaðri menningu innan Samgöngustofu? Þá er tækifærið núna til að hafa áhrif.
Tilgangur umbótahópsins er að skapa menningu stöðugra umbóta innan Samgöngustofu sem og að auka ánægju starfsfólks og viðskiptavina með aukinni skilvirkni í daglegum störfum. Hlutverk hópsins er einnig m.a. að:
- greina og meta þörf á fræðslu fyrir starfsfólk varðandi umbótamiðaða menningu, breytingastjórnun, jákvæða vinnustaðamenningu o.fl.
- leggja fram tillögur að átaksverkefnum
- hvetja starfsfólk til þátttöku og skráninga í ábendingakerfið Bendil
- vera vakandi fyrir úrbótatækifærum í daglegu starfi
Hér má sjá nánar um hlutverk umbótahópsins.
Umbótahópinn skipa:
Davíð Jón Rikharðsson
Díana Björk Eyþórsdóttir
Jón Gunnar Jónsson
Ólöf Friðriksdóttir – ritari
Leifur Gústafsson
Una Björg Einarsdóttir – formaður
Þú?
Þau sem geta hugsað sér að tilheyra umbótahópnum, taka þátt í kraftmiklu umbótastarfi og taka þátt í því að stuðla að menningu stöðugra umbóta mega senda tölvupóst á una.b.einarsdottir@samgongustofa.is fyrir miðvikudaginn 15. maí 🙂