
Samgöngustofa tekur þátt í morgunfundi Vegagerðarinnar á morgun, 7. maí. Umfjöllunarefni fundarins er öryggi starfsfólks við vegavinnu. Þar verður kynnt vitundarátakið; Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér, flutt stutt erindi um reynslu fólks af því að starfa í nálægð við þunga umferð og Gunnar Geir mun kynna og sýna nýtt myndband um akstur gegnum vinnusvæði.
Morgunfundurinn fer fram kl. 9-10:15 í húsakynnum Vegagerðarinnar, Suðurhrauni 3 í Garðabæ.
Einnig verður fundurinn í beinu streymi.