
Árið 2022 létust átta manneskjur í umferðinni hér á landi. Það ár var Ísland með þriðju lægstu dánartíðni í umferðinni í Evrópu. Þetta kemur fram í samanburði Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, sem reiknar banaslysatíðnina á hverja milljón íbúa í hverju landi.
Full ástæða til að fagna þeirri fækkun sem orðið hefur á fjölda látinna í umferð frá því sem áður var þegar tugir biðu bana á hverju ári á Íslandi. Þennan árangur má þakka ýmis konar framförum sem unnið hefur verið að, meðal annars með framkvæmd umferðaröryggisáætlunar.
Frétt um samanburð Eurostat á fjölda banaslysa í Evrópulöndum má lesa á mbl.is í dag.