Nýtt og betra hjá skráningum og þjónustu

Allskonar umbótaverkefni eru í gangi hjá skráningum og þjónustu eins og við sáum í föstudagskaffinu í morgun. Deildin sinnir mikilvægu hlutverki í samskiptum við viðskiptavini og leggur metnað í að sem flestir fái úrlausn mála fljótt og vel. Innleiðing ýmis konar tæknilausna miðar meðal annars að því að auka sjálfsafgreiðslu sem er gott fyrir bæði fólk og umhverfi og minnkar um leið álag í starfseminni. Einnig gefa ný kerfi aukna yfirsýn yfir til dæmis hraða þjónustu og upplifun viðskiptavina.

Skráningar og þjónusta vilja auka samstarf innanhúss til að bæta þjónustuna við alla viðskiptavini. Eru aðrar deildir hvattar til að senda þeim ábendingar um það sem betur má fara og bjóða heimsókn á deildarfundi til að ræða áframhaldandi úrbætur sem gagnast okkur öllum.