
Eru ekki öll á fullu í aktívum apríl?
Stjórn Farsýslunnar hafa borist ábendingar sem teknar hafa verið til greina. Mörgum finnst ógerlegt að ætla að ná að klára öll 20 atriðin á hreyfibingó spjaldinu á tilsettum tíma. Við höfum því ákveðið að aðeins þurfi að klára 12 atriði til að komast í pottinn.
Þá viljum við einnig minna á að það verða fleiri vinningar í boði en páskaegg. Það er því til mikils að vinna.
Stjórn Farsýslunnar gengur að sjálfsögðu fram með góðu fordæmi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Við viljum skora á ykkur að nýta hádegið í matsalnum til að skora á vinnufélaga í sjómann og hrósa vinnufélaga….eða eitthvað annað á spjaldinu.
Bestu kveðjur,
Stjórn Farsýslunnar
