Skráning á árshátíð – skemmtiatriði

Nú styttist í að skráningarfrestur renni út á ógleymanlegasta viðburð ársins, árshátíðina þann 20. apríl nk. Fresturinn rennur út í lok dags 12. apríl.

Ef einhver í hópnum hefur hug á að vera með skemmtiatriði þá er sjálfsagt að hafa samband við okkur í stjórninni. Ekki verða sérstakar áheyrnarprufur heldur verður hver umsókn metin sérstaklega.

Hér er skráningarhlekkur https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSch7okccx4UVIy2M2LtOu0goxWLrN4J8awAI05ScpdGwWWZiw/viewform

Nú þegar hafa um 95 skráð sig (með mökum).