
Siglingaöryggisstofnun Evrópu, EMSA, hefur gefið út myndband sem sýnir árangur stofnunarinnar 2023. Þar má sjá í máli og myndum starf stofnunarinnar og þau fjölbreyttu verkefni sem unnin voru á síðasta ári.
EMSA er ein þeirra alþjóðastofnana sem Samgöngustofa á mikilvægt samstarf við fyrir Íslands hönd. EMSA veitir Evrópuþjóðum stuðning með útfærslum á reglum til siglingaöryggis og vörnum gegn mengun frá skipum.