
Sæl öll! Eins og mörg okkar vita er hlaupársagur í dag og stemmning og gírun hjá stofnuninni er eðlilega samkvæmt því. Það er eitthvað alveg geggjað við það að fá auka dag í árið og mörg okkar velta fyrir sér hvernig þau eiga að ráðstafa þessum kærkomna aukadegi. Þau okkar sem velta því fyrir sér þurfa ekki að örvænta því stofnunin okkar er komin með alvöru prógram í dag. Jú jú – þið giskuðuð rétt. Í dag, fimmtu- og hlaupsársdaginn 29. febrúar, verður nefnilega rafrænn tiltektardagur.
En hvað felst í rafrænum tiltektardegi? Í ár ætlum við að einblína á málakerfið okkar með það að markmiði að loka málum sem eru ekki í notkun. Í málakerfi Samgöngustofu, One, eru samtals 208.087 mál og þar af eru 10.205 mál í vinnslu. Það þýðir að um 4.9% af öllum málum nokkurn tíman hjá Samgöngustofu eru í vinnslu en það hlýtur að teljast býsna hátt hlutfall. Kostir þess að loka málum eru margir; skjaladeildin getur andað hægar, mitt one stjórnborðið lítur betur út, það hjálpar til við gagnaskil til Þjóðskrár en fyrst og síðast er það er gott fyrir samviskuna að loka málum ásamt því að heilinn seytir dópamíni í kollinn manns.
Það er því ekki eftir neinu að bíða, starfsfólk kært. Setjið ykkur í stöður! Það verður mikið verk unnið í dag, á hlaupársdag. Skjalateymi verður starfsfólki innan handar við lokun mála og því ætti allt starfsfólk að geta tekið þátt. Skjalateymið er meira að segja svo almennilegt að það verður einnig til taks á morgun og svo eftir samkomulagi næstu vikur. Gangi ykkur vel!