Orlof – réttindi, skipulag og Vinnustund

Tíminn flýgur og ekki seinna vænna að huga að því að skipuleggja orlofstöku sumarsins. Það getur verið bæði snjallt og hagnýtt að skipuleggja frí tímanlega því samkvæmt 3. mgr. 11. greinar starfsmannalaganna er starfsfólki skylt að taka orlof.

þessi skipulagði fríið með góðum fyrirvara

Réttindi
Starfsfólk safnar 30 daga orlofi (240 klst) og á rétt á að taka alla þá frídaga, þar af 15 daga samfellda, á orlofstímanum.
Tímabil sumarorlofs er frá 1. maí til og með 15. september.
Skrá skal orlofsbeiðnir í Vinnustund (eða Smástund).

Skipulag orlofstöku
Yfirmaður ákveður, í samráði við starfsfólk, hvenær orlof er veitt (orðalag í kjarasamningum). Yfirmanni er skylt að verða við óskum starfsfólks um orlofstöku verði því komið við vegna starfsemi stofnunar. Við skipulagningu orlofs skulu upplýsingar um stöðu þegar áunnins og ótekins orlofs vera starfsfólki aðgengilegar. Þessar upplýsingar eru alltaf aðgengilegar í Vinnustund (einnig gott að skoða í Smástund).

Í flestum kjarasamningum kemur fram að ákvörðun um sumarorlof skuli liggja fyrir eigi síðar en 31. mars og tilkynna skuli starfsmanni með sannanlegum hætti, svo sem í tímaskráningarkerfi stofnunar (Vinnustund).

Staða orlofs – hvernig á að lesa Vinnustund
Hægt er að skoða stöðu orlofs í Vinnustund undir Sjálfsþjónusta > Leyfi, í dálknum “staða til úttektar” sést hvað maður á til úttektar í dag. Talan í “úttekið” eru allir tímar sem skráðir hafa verið sem orlof nú þegar.
Hafi maður þegar skipulagt frí fram í tímann og það verið samþykkt er gerð grein fyrir því undir “úttekt skráð eftir dags.”

Þessi á ekkert orlof inni en hefur þegar tekið 16,19 klst af orlofi næsta árs (01.05.2024-30.04.2025). Viðkomandi hefur að auki skipulagt frítöku uppá 24 klst (3 vinnudagar). Ávinnslan (176,61 klst) er vel umfram úttektina svo þetta er í góðu lagi, að því gefnu að stjórnandi hafi samþykkt.

Þessi á inni orlof, 104,63 klst. sem kemur til með að fyrnast 1. maí nk. ef tímanir eru ekki fullnýttir fyrir þann tíma. Þessi þarf að skipuleggja frítöku og verður eflaust ánægð að heyra að Samgöngustofa heimilir að flytja 5 orlofsdaga (40 klst) á milli orlofsára.

Hér að ofan eru tvö skjáskot þar sem orlofsstaðar er nokkuð ólík, efri myndin er aðili sem hefur þegar gengið á 16,19 klst af næsta orlofsári. Neðra skjáskotið er aðili sem á til úttektar 104,63 klst. Neðri aðilinn verður eflaust ánægður að heyra að Samgöngustofa hefur ákveðið að heimila flutning á mest 5 orlofsdögum (40 klst.) á milli orlofsára.

Að skrá orlofsbeiðni
Í Vinnustund er orlofsbeiðni skrá með því að fara í sjálfsafgreiðslu > Fjarvistaróskir, og smella þar á litla plúsinn ofarlega í hægra horninu. Þar eru svo settar inn dagsetningar og ath.semd ef fólk vill. Athugið að kerfið hnippir ekki sjálfkrafa í næsta yfirmann og því gott að láta vita.
Einnig er hægt að skrá fjarvistarósk í Smástund, það er hnappur merktur “Fjarvistaróskir” fyrir miðju á forsíðu (þarf að draga aðeins til). Þar er litli plúsinn neðarlega hægra megin, svo eru valdar dagsetningar, skráð skýring ef vill og svo smellt á litla disklinginn í hægra horninu til að vista óskina.

Alltaf velkomið að heyra í mannauðsdeild ef ykkur vantar aðstoð, minnum á netfangið laun@samgongustofa.is – erum einnig allar duglegar að svara á teams 🙂