
Í vikunni fór fram fundur vinnuhóps innan Evrópu um flutning á hættulegum varningi í flugi. Þar var farið yfir alþjóðlegar kröfur sem gilda um málaflokkinn, innleiðingu þeirra og eftirfylgni reglugerða um umbúðir, merkingar og meðhöndlun hættulegra efna. Vinnuhópurinn hittist tvisvar á ári og miðlar upplýsingum og ræðir leiðir til að auka öryggisráðstafanir og bæta neyðarviðbrögð komi til slyss.