Fleiri loftferðasamningar í höfn

Kristín Helga og Pétur Thorsteinsson frá utanríkisráðuneytinu með samningafólki frá Haiti

Eins og fram kom í síðustu viku, tók Ísland þátt í árlegri samningaráðstefnu ICAO. Tilgangurinn er gerð tvíhliða samninga ríkja um flugsamgöngur og þar með aukinn markaðsaðgangur fyrir íslensk fyrirtæki í flugrekstri. Loftferðasamningar eru forsenda fyrir starfsemi þessara fyrirtækja erlendis. Misjafnt er hversu víðtæk réttindi er kveðið á um í samningum Íslands. Meira um það má lesa hér.

Á ráðstefnunni voru gerðir nýir samningar við nokkur ríki á borð við Antigva og Barbúda, Kosta Ríka og Úganda. Einnig voru undirritaðir samningar við nokkur ríki sem áður hafði náðst samkomulag við og samningaviðræður hafnar við önnur ríki.

Ísland hefur nú gert loftferðasamninga við vel yfir hundrað ríki. Samningaviðræður fara fram í samráði við íslenska flugrekendur.