Nú er jóladagatal Starfsfólks Samgöngustofu rétt hálfnað. Nóg af vinningum eru enn í pottinum og hvetjum við starfsfólk til að taka þátt. Hér koma rétt svör og vinningshafar hingað til!
Fyrst var spurt um hraða beltasleðans í Ökuskóla 3 en rétt svar var 5 km hraði. Vinningshafi fyrsta dagsins var hún Sædís Jónasdóttir en hún var dregin úr hópi þeirra sem svöruðu þessari spurningu rétt.
Næst var spurt út í umferðarmerki en það var hún Margrét Birna Björnsdóttir sem var vinningshafi þann daginn. Hún svaraði þeirri spurningu rétt, umferðarmerkið var Umferðarljós (viðvörunarmerki).
Afmælisdagur samgöngustofu er 1. júlí og urðum við 10 ára á þessu ári. Hún Gerður H. Sigurðardóttir svaraði þeirri spurningu rétt, komst í pottin og stóð uppi sem vinningshafi þess dags.
Hafdís Bára Ólafsdóttir svaraði því rétt að eftir 18 tíma erum við orðin jafn slæmir bílstjórar eins og einhver sem er undir áhrifum. Hún var dregin úr hópi þeirra sem svöruðu rétt og hlaut vinningin þann daginn.
Dröfn Gunnarsdóttir hlaut verðlaunin þegar spurt var um sigurvegara jólaskreytingarkeppninnar 2022. Rétt svar var gangur 3-A (gangurinn sem í ár er tene jól).
Á föstudaginn var svo aftur spurt um umferðarmerki og rétt svar er Hægri beygja bönnuð (Bannmerki – það eina sem er með skástrikið niður til vinstri í stað niður til hægri). Vinningshafi föstudagsins var hann Kolbeinn Arnarson.
Takk fyrir frábæra þátttöku, höldum áfram í stemmingunni fram að jólum!
