Minningardagur um fórnalömb umferðarslysa

Sunnudaginn 19. nóvember er alþjóðlegur minningardagur um þau sem látist hafa í umferðinni. Í ár verður minningarathöfn við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi klukkan 14:00. Auk þess verða viðburðir víða um land á vegum Slysavarnafélagsins Landsbjörg. Hægt er að sjá nánari upplýsingar á www.minningardagur.is. Öll eru velkomin.

Dagskrá minningarathafnar í Reykjavík

14:00 Minningarathöfnin sett – Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar
14:05 Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson flytur erindi
14:10 Einnar mínútu þögn
14:11 Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra flytur erindi
14:16 Inda Hrönn Björnsdóttir fjallar um sína reynslu
14:25 Formlegri athöfn slitið
14:25 Boðið upp á kaffi, kakó og með því