Dagpeningar innanlands – breytt upphæð frá og með 1. nóv 2023

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. nóvember 2023. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2023.

  1. Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 38.500 kr.
  2.  Gisting í einn sólarhring kr. 22.600 kr.
  3. Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 15.900 kr.
  4.  Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 7.950 kr.

Uppfært skjal “Ferðabeiðni innanlands, frá og með 1. nóv 2023” er komið hér á innri vefinn undir Samgöngustofa – verklagsreglur