
Í dag munum við senda velvöldum aðilum furðulegan eggjabakka. Sem alls ekki er hugsaður til átu!
Þó gjörningurinn sé hress og skemmtilegur er málefnið alvarlegt. Um er að ræða lið í herferð okkar gegn gáleysislegri notkun á rafskútum. Þó fararmátinn sé algjörlega frábær þá þarf því miður að minna fólk á mikilvægi þess að fara eftir lögum og reglum, í von um að hægt sé að koma í veg fyrir fleiri slys
Við vonum því að samfélagsmiðlarnir okkar fyllist af eggjum um helgina. Fólk er hvatt til þess að deila mynd/myndböndum af eggjunum á skemmtilegan og skapandi hátt. Allt er leyfilegt (nema að borða eggin. Mælum ekki með því!)

