
Það er hann Lárus Long (aka Lalli) sem velur föstudagslagið í þetta skiptið:
Það er lagið Never ever let you go – Rollo & King. Að sjálfsögðu veljum við danskt Eurovision lag síðasta föstudaginn fyrir Köbenferðina og Samgönguvision. Það var SKANDALL að þetta lag vann ekki í Parken 2001, enn og aftur náði pólitíkin yfir í stigagjöfinn, ég hef enn ekki jafnað mig.
Það er einfaldlega ekki hægt að dilla sér ekki þegar þetta lag kemur fóninn, og það mun svo sannarlega gerast í SAS höllinni næstkomandi föstudag.
Samgöngustofa, BYRJIÐ að hlakka til NÚNA!
Ég skora á nýju bestu vinkonu mína Bjarklindi að koma með næsta föstudagslag – vonandi eitthvað legendary úr Kaupmannarhafnarferðinni 🙂